Íslenska
Spunagreind
ChatGPT
Um ChatGPT

ChatGPT

ChatGPT er gervigreindarspjall frá fyrirtækinu OpenAI sem gerir fólki kleift að tala við tölvu á náttúrulegu máli. Tæknin byggir á stórum tungumálalíkönum (GPT) sem geta lesið, skilið og búið til texta, kóða og greiningar.

⚠️
warning
Allir á internetinu geta opnað ChatGPT á https://chatgpt.com/ og byrjað að spjalla. Það ber að varast að ef þú notar síðuna bara beint ertu ekki auðkenndur og allt sem þú setur inn getur verið gert aðgengilegt öðrum.

Því er mikilvægt að útbúa aðgang og ef þú ætlar að nota ChatGPT í störf innan Orkuveitunnar þarf að skrá þig inn í okkar aðgang. Til að gera það fyllir þú út þetta form og það verður útbúinn aðgangur fyrir þig. Það ber að hafa í huga að þessi aðgangur kostar $40 á mánuði fyrir hvern starfsmann og ættu því allir að vera meðvitaðir að segja upp áskriftinni ef hún skilar ekki ávinningi fyrir fyrirtækið.

Hvað er hægt að gera með ChatGPT?

Ótrúlegustu hluti svo sem, hugmyndavinnu, textavinnslu, forritun, myndagerð, rannsóknarvinnu o.fl. Við skulum taka dæmi hér á næstu síðum.

Hvernig fæ ég aðgang að ChatGPT?

Þú þarft að lesa textann á þessum hlekk og fylla út formið til að fá aðgang: https://orkuveitan.atlassian.net/servicedesk/customer/portal/1/group/1/create/552 (opens in a new tab)

Hvernig hætti ég með ChatGPT?

Sendir á hjalp.or.is eða 6677 og segir upp áskriftinni.

💡
info
Microsoft Copilot og ChatGPT nota sama tungumálamódelið.