Almennt um spunagreind
Hvað er spunagreind?
Spunagreind (e. generative AI) er tegund gervigreindar sem getur búið til nýtt efni, til dæmis texta, myndir, hljóð eða forritunarkóða. Hún byggir á stórum gagnasöfnum og notar reiknirit til að læra mynstur og samhengi í þeim gögnum. Með því getur hún „spunnið" fram efni sem líkist því sem hún hefur séð áður.
Hvernig virkar spunagreind?
Spunagreind notar djúp tauganet, sérstaklega svokölluð stór málmódel (e. large language models, t.d. GPT). Þessi módel fá inntak (t.d. spurningu eða fyrirmæli) og svara með því að spá fyrir um líklegustu orð, hljóð eða mynddíla næst í röðinni.
Til dæmis: Þegar þú spyrð spurningu, notar módelið fyrri gögn til að meta hvað væri skynsamlegt svar — líkt og kona sem hefur lesið milljónir texta og getur dregið af þeim almennar niðurstöður.

Hvernig á að nota spunagreind?
Þegar fólk hugsar um spunagreind, þá kemur oftast upp í hugann spjallmenni eða „chatbot“. Þetta eru forrit þar sem þú getur talað beint við gervigreind — beðið um svör, hjálp við verkefni eða jafnvel beðið hana að skrifa, útskýra, þýða eða hugsa með þér.
- Í hugmyndavinnu
- Búa til hugmyndir, drög eða valkosti til að byrja með.
- Gott til brainstorming, slagorða, skipulags eða skissuhönnunar.
- Til að einfalda vinnu
- Sjálfvirk samantekt gagna eða funda.
- Drög að textum (t.d. tölvupóstur, skýrslur, kynningar).
- Lögð áhersla á að þú yfirferðir og lagfærir áður en birt er.
- Til að læra eða fá útskýringar
- Fá fljótleg svör, samantektir eða útskýringar á flóknum hugtökum.
- Til að auka sköpun
- Hönnun, textasköpun, sögur, tónlist, kóði o.s.frv.
Hvenær er sniðugt að nota spunagreind?
✅ Þegar þörf er á fljótlegum drögum eða tillögum sem þú getur unnið út frá.
✅ Þegar þú vilt fá yfirsýn eða samanburð á gögnum eða hugmyndum.
✅ Þegar þú þarft að sparaða tíma í rútínuverkefnum (samantektir, síur, uppsetningar).
❌ Ekki þegar nákvæmni eða sannleiksgildi verður að vera tryggt (t.d. lagaleg atriði, öryggismál).
❌ Ekki þegar um er að ræða viðkvæm gögn (persónuupplýsingar, trúnaðargögn).
❌ Ekki til að sleppa mannlegri yfirferð - spunagreind gefur oft sannfærandi en rang svör.
Spunagreindartól
Tól sem gefa okkur aðgang að gervigreind eru sífellt að þróast og streyma inn eins og heitar lummur. Því þarf að halda vel á spöðunum og fylgjast vel með og uppfæra tólalistann okkar reglulega. Við viljum nýta okkur bestu tækni hverju sinni og því þarf stundum að breyta og innleiða ný tól og taka út önnur.
Það getur verið ruglandi fyrir fólk að koma inn í þennan heim enda mikið í boði. Hér hjá Orkuveitunni erum við með aðgang að Microsoft og þá höfum við aðgang að gervigreindarspjallinu Microsoft Copilot. Orkuveitan kaupir einnig aðgang að ChatGPT en það kostar $40 á mánuði fyrir hvern notanda og því er æskilegt að tólið skili verðmætum umfram það sem Microsoft Copilot býður upp á.

Notaðu spunagreind sem aðstoðarmann, ekki sem einhvern sem tekur endanlegar ákvarðanir. Þú átt alltaf að yfirfara, laga og bera ábyrgð á lokaútkomunni.