Útbúa myndir
Copilot býður upp á þægilega og öfluga leið til að útbúa myndir. Þetta getur verið sérstaklega gagnlegt þegar verið er að búa til efni fyrir verkefni, kynningar eða annað myndefni. Ferlið er aðeins formfastara en þegar maður biður spjallforrit á borð við ChatGPT að búa til myndir, en á móti kemur að þú færð meiri stjórn á útliti og framsetningu. Hægt er að velja úr mismunandi stílum og sniðmátum eftir því hvað hentar hverju sinni.
Til að útbúa myndir smellir þú á „Create“ í vinstri stikunni. Þá opnast eftirfarandi viðmót:

Hægt er að útbúa plaköt með því að velja „Design a poster“:

Einnig er hægt að búa til infographics, sem henta sérstaklega vel í glæru- og kynningarefni. Þá velur þú „Design an infographic“:

Þá birtist stika þar sem þú getur slegið inn þær upplýsingar sem eiga að birtast á myndinni og stýrt útliti hennar. Hér er búið að setja ákveðinn strúktúr á fyrirmælin, sem einfaldar vinnuna og hjálpar til við að fá skýrari niðurstöðu:

Ég fylli þetta út, ýti á Create og fæ þessa fínu mynd í kjölfarið:

Endilega prófið ykkur áfram og leikið ykkur með mismunandi útfærslur 🥳