Byrja að nota Microsoft Copilot
Hér eru leiðbeiningar hvernig þú tekur fyrst skrefin með Microsoft Copilot.
Skref 1: Opna Microsoft Copilot
Til eru tvær leiðir til að nálgast Copilot spjallið, í Teams og í vafra. Bæði viðmótin eru svipuð svo hér eftir verða skjáskotin tekin úr vafra.
Þú opnar https://copilot.microsoft.com/ (opens in a new tab) og skráir þig inn með vinnunetfanginu.

Þá er Microsoft Copilot opið í vafra 🥳
Skref 2: Skoða viðmótið
Viðmótið er frekar einfalt. Við sjáum texta reit sem tekur á móti spurningum og skipunum. Þar fyrir neðan eru uppástungur að spurningum sem maður getur smellt á til að prófa. Hér er mynd sem fer yfir það helsta í viðmótinu.
Útskýring á viðmótinu
Skref 3: Byrjaðu að spjalla
Skrifaðu spurninguna þína á íslensku eða ensku og ýttu á Enter. Eða einfaldlega segðu bara "Hæ" og byrjaðu að spjalla.
Einnig er hægt að velja tillögur að spurningu í boxunum til að prófa.
Skref 4: Notaðu svarið
Copilot mun gefa þér svar sem þú getur:
- Afritað og límt inn í t.d. tölvupóst eða skjöl
- Deilt með öðrum
- Nýtt þér til fróðleiks