Íslenska
Spunagreind
Microsoft Copilot
Dæmi
Excel

Excel

Mjög mörg okkar nýta sér Excel í sinni vinnu og er um að gera að nýta sér spunagreindina til að hjálpa við vinnuna. Hægt er að hlaða upp excelskjölum inn í spjallið og spyrja út í gögnin, einnig hægt að biðja gervigreindina að útbúa skjal.

Við tökum nokkur dæmi hér fyrir neðan, og líkt og áður er þessi listi alls ekki tæmandi.

Yfirlit

Gervigreindin getur t.d. hjálpað þér að:

  • Draga saman gögn og finna lykilniðurstöður.
  • Skrifa, laga og útskýra formúlur.
  • Hanna formúlur og sniðmát frá grunni.
  • Sýna þróun og mynstur í gögnum.
  • Sjálfvirknivæða endurtekin verkefni og ferla.

Hvernig virkar þetta?

Copilotinn ætti að vera mættur inn í Excelið okkar en við erum því miður að lenda í vandræðum með það, það lagast vonandi sem fyrst. Þangað til verðum við bara að lifa við þann veruleika að hlaða upp gögnum í spjallið og spyrja þaðan.

💡
note
Hægt er að hlaða upp skrá með fyrirspurninni með því að skrifa inn skrástrik og skrifa síðan nafnið á skránni ef hún er vistuð í þitt Microsoft umhverfi. Svo er líka hægt að ýta á plúsinn 😉

1. Hlaða upp skrá og byrja samtal

  • Opnaðu nýtt spjall og veldu skjal, annað hvort með því að ýta á plúsinn, draga inn eða nota skástrik.
  • Spyrðu spjallið út í gögnin þín.
  • Þú getur beðið um svör á ákveðnu formi eða skipulagi.

Microsoft Copilot email example

2. Fáðu niðurstöður og haltu áfram

  • Copilot svarar strax með innsýn og greiningu.
  • Þú getur fylgt eftir með nánari spurningum eða beðið um önnur sjónarhorn.

Microsoft Copilot email example

Nokkur dæmi um notkun

1. Skilja gögnin þín

Spunagreindin getur:

  • Tekið saman stór gagnasöfn.
  • Greint þróun og frávik.
  • Fundið villur eða ósamræmi í gögnum.

💡 Dæmi um spurningu:

Hver eru helstu mynstur eða þróun í þessum gögnum. [setja skrá í viðhengi]

2. Skrifa og laga formúlur

Spunagreindin hjálpar þér að:

  • Skrifa formúlur fyrir Excel eða Google Sheets.
  • Greina og laga villur í formúlum.
  • Breyta textalýsingum í réttar formúlur.

💡 Dæmi um spurningu:

Þessi SUMIFS formúla virkar ekki — geturðu lagað hana og útskýrt hvað fór úrskeiðis? [setja skrá í viðhengi]

3. Búa til frá grunni

Búðu til uppbyggingu, formúlur og skilyrta litun auðveldlega.

💡 Dæmi um spurningu:

Búðu til Excel fjárhagsyfirlit þar sem útgjöld eru flokkuð eftir flokkum (t.d. matur, samgöngur, skemmtun).  
Láttu töfluna sjálfkrafa reikna heildarútgjöld fyrir hvern flokk og merkja með rauðum lit ef útgjöld fara yfir 100.000 kr.  

4. Greina og sýna

Búðu til samantektir, töflur og myndrit.

💡 Dæmi um spurningu:

Gerðu súlurit sem sýnir tekjur eftir vörulínum og dragðu saman helstu niðurstöður. [setja skrá í viðhengi]

5. Sjálfvirknivæða ferla

Gervigreindin getur skrifað Excel-makrós eða skriftur sem sjálfvirknivæða vinnuna.

💡 Dæmi um spurningu:

Búðu til Excel-makró sem fjarlægir tvíteknar færslur og raðar eftir landsvæði. [setja skrá í viðhengi]

Dæmi um fyrir og eftir

Copilot stytti mér sporin þegar ég þurfti yfirstrika línur sem uppfylltu ákveðin skilyrði. Ég hleð skránni með fyrirmælinu "Highlight lines that meet the following criteria:...".

Excel Excel

Þetta dæmi er ekki flókið og mögulega mjög fljótgert fyrir þau sem eru klár í Excel en hjálpar þeim sem eru ekki klár í Excel að flýta fyrir sér.