Íslenska
Spunagreind
Microsoft Copilot
Dæmi
Tölvupóstaskrif

Hjálp með tölvupósta

Svara tölvupósti

Það er mjög sniðugt að nýta sér spjallið til að hjálpa sér að skrifa og svara tölvupóstum. Til dæmis afrita tölvupóst sem þú hefur fengið og biðja spjallið um að svara.

Dæmi um tölvupóst sem ég þarf að svara

Tölvupóstur
Efni: Fyrirspurn vegna samstarfsverkefnis
 
Sæl Jóna,
 
Mig langaði að forvitnast hvort þið hefðuð áhuga á að taka þátt í samstarfsverkefni sem snýr að sjálfbærni og nýsköpun innan opinberra stofnana. Við erum að leita að samstarfsaðilum sem hafa reynslu eða áhuga á að þróa lausnir sem stuðla að minni sóun, betri nýtingu auðlinda og aukinni þátttöku starfsmanna í sjálfbærniverkefnum.
 
Verkefnið er enn á hugmyndastigi, en við stefnum á að sækja um styrk innan næstu mánaða og viljum því hefja samtal sem fyrst við mögulega samstarfsaðila.
 
Væri mögulegt að hittast í fjarfundi síðar í vikunni eða í byrjun næstu viku?
 
Bestu kveðjur,
Jón Jónsson
Verkefnastjóri

Ég vil svara Jóni með því að ég sé í fríi í næstu viku en ég vilji hittast í þar næstu viku, ég er laus á miðvikudag. Svo ég set þessa fyrirspurn inn í spjallið:

Spurning
Hér er tölvupóstur sem ég fékk. Geturðu skrifað kurteist og jákvætt svar þar sem ég segi að ég hafi áhuga á samstarfi og að ég sé laus í fjarfund á miðvikudeginum í þarnæstu viku? Ekki of formlegt, en samt faglegt.
 
'''
Sæl Jóna,
 
Mig langaði að forvitnast hvort þið hefðuð áhuga á að taka þátt í samstarfsverkefni sem snýr að sjálfbærni og nýsköpun innan opinberra stofnana. Við erum að leita að samstarfsaðilum sem hafa reynslu eða áhuga á að þróa lausnir sem stuðla að minni sóun, betri nýtingu auðlinda og aukinni þátttöku starfsmanna í sjálfbærniverkefnum.
 
Verkefnið er enn á hugmyndastigi, en við stefnum á að sækja um styrk innan næstu mánaða og viljum því hefja samtal sem fyrst við mögulega samstarfsaðila.
 
Væri mögulegt að hittast í fjarfundi síðar í vikunni eða í byrjun næstu viku?
 
Bestu kveðjur,
Jón Jónsson
Verkefnastjóri
'''

Hér er svarið við þessari fyrirspurn:

Microsoft Copilot email example

Næsta skref er því að afrita svarið og nota sem svar, eða ítra með gervigreindinni til að fá t.d. styttra svar, formlegra eða bæta við brosköllum. Um að gera að prófa sig áfram.

Skrifa nýjan póst

Hér er myndband af spjalli þar sem beðið erum tölvupóst sem finnur nýjan tíma fyrir fund: