Íslenska
Spunagreind
ChatGPT
Verkefni

Verkefni / Möppur (Projects)

Þegar þú hefur notað ChatGPT í nokkurn tíma getur spjalllistinn vinstra megin orðið að einhverju skrímsli af mismuandi spjöllum.

Þú er sennilega oft að:

  • byrja ný spjöll á sömu forsendum
  • endurtaka sömu leiðbeiningar
  • hengja aftur og aftur við sömu skjöl

Þarna koma Projects (verkefni / möppur) sterk inn.

Þú getur hugsað Project eins og möppu í tölvunni.
Í verkefni geturðu:

  • flokkað spjöll sem tengjast sama viðfangsefni
  • geymt leiðbeiningar (system instructions)
  • hlaðið inn skjölum og gögnum
  • tryggt að öll spjöll í verkefninu noti sama samhengi

Þetta sparar tíma, eykur samræmi og gerir ChatGPT mun gagnlegra til lengri tíma.


Hvar finn ég Projects?

Verkefnamöppurnar eru í hliðarstikunni til vinstri.
Hér má sjá dæmi um þrjú verkefni:

Projects

Til að búa til nýtt verkefni velurðu New project. Þá opnast gluggi þar sem þú getur:

  • gefið verkefninu nafn
  • valið lit og tákn (emoji / mynd)

Projects


Hvað er hægt að stilla inni í verkefni?

Inni í hverju verkefni geturðu:

  • ✍️ skilgreint leiðbeiningar (Instructions)
  • 📎 hlaðið inn skjölum (PDF, Word, myndir o.fl.)
  • 🧠 byggt upp fasta þekkingu fyrir spjallmennið
  • 💬 safnað öllum tengdum spjöllum á einn stað

Leiðbeiningarnar eru notaðar sjálfkrafa í öllum spjöllum innan verkefnisins.


Dæmi 1: Stefnur Orkuveitunnar (nota skjöl)

Ég bý til verkefni sem heitir „Stefnur“. Þá opnast tómt verkefni:

Projects

Efst hægra megin er hægt að opna stillingar með því að smella á þrjá punkta:

Projects

Þá opnast stillingagluggi þar sem ég get:

  • sett leiðbeiningar
  • hlaðið inn skjölum

Projects

Í Instructions skilgreini ég hvernig ég vil að spjallmennið svari, t.d.:

  • hvaða stíl á að nota
  • hvernig svör eiga að vera uppsett
  • hvort eigi að vísa í skjöl
  • hvort spjallið megi spyrja nánari spurninga

Projects

Síðan hleð ég inn öllum stefnuskjölum Orkuveitunnar sem ég vil að spjallmennið noti sem þekkingargrunn:

Projects

Nú get ég spurt spurninga innan verkefnisins, t.d.: „Mig vantar stefnu um sólarorku.“

Projects

Spjallmennið svarar þá út frá skjölunum og leiðbeiningunum:

Projects

Spjallið vistast sjálfkrafa undir verkefninu í hliðarstikunni:

Projects

Ef spjall lendir í röngu verkefni er einfalt að færa það:

  • smella á þrjá punkta við spjallið
  • velja Move to project

Projects


Dæmi 2: Svara tölvupóstum

Projects eru líka mjög hentug fyrir endurtekna vinnu, t.d. að svara tölvupóstum.

Ég bý til verkefni sem heitir „Svara tölvupóstum“ og set inn leiðbeiningar um:

  • tón (kurteis, skýr, stutt svör o.s.frv.)
  • uppsetningu svara

Projects

Þegar verkefnið er tilbúið get ég einfaldlega:

  • límt inn tölvupóstinn
  • ekkert annað samhengi þarf

Projects

Svarið sem ég fæ er þá í samræmi við leiðbeiningarnar í verkefninu:

Projects


Af hverju að nota Projects?

  • ⏱️ Sparar tíma
  • 🧠 Minna endurtekningar
  • 📂 Betri skipulagning
  • 🎯 Samræmd svör og stíll
  • 🔁 Fullkomið fyrir endurtekin verkefni

Þumalputtaregla

Ef þú ert oft að gera svipaða hluti eða vinna með sömu gögn → búðu til Project.