Íslenska
Spunagreind
ChatGPT
Viðmót

Viðmót ChatGPT

Viðmót ChatGPT er frekar einfalt og stílhreint. Ekki láta ykkur bregða ef það er ljóst, það er hægt að skipta á milli dark og light mode.

Til að byrja að nota tólið skrifar þú einfaldlega inn spurningu inn í textareitinn á miðjum skjánum og ýtir á Enter.

Einnig er hægt er að nota röddina, bæði með því að ýta á hljóðnemann og umbreyta því í textaspurningu eða fara í voice mode til að spjalla (hlekkur á þessa síðu).

Alt text

Nýtt spjall

Þegar unnið er með spjallmenni byggist það á því að búa til spjöll. Það er gott ráð að búa til nýtt spjall þegar breytt er um umræðuefni, minnkar líkur á villum og misskilningi hjá gervigreindinni.

Það er gert með því að ýta á "New chat" í vinstra horninu í hliðarmyndinni. Þá verður það spjall til undir "Chats" í valmyndinni og geymist það þar. Spjallið fær nafn út frá umræðuefni spjallsins í byrjun spjallsins. Þetta spjall er geymt þarna og þú getur skoðað það aftur ef þú vilt.

Eins og ég minnist á áðan er sniðugt að búa reglulega til nýtt spjall. Til dæmis ef þú ræðir persónuleg atriði við spjallið og notar síðan sama spjall til að skrifa fundargerðir og greinar gætu persónulegu atriðin komið upp í nýja efninu 😅

Nýtt spjall fjarlægir gamla umræðu og hjálpar gervigreindinni að halda einbeitingu á því sem skiptir máli núna.

Stundum vill maður ekkert geyma spjallið, kannski bara óþarfi. Þá er mjög góður vani að velja tímabundið spjall. Þá hverfur það þegar þú lokar glugganum.

ChatGPT sidebar chat

Plúsinn

Hægt er að ýta á plúsinn til að fá fleiri möguleika.

  • Fylgiskjöl og myndir: Hægt er að bæta við fylgiskjölum og myndum í spurninguna.
  • Company knowledge: Ekki virkt núna!
  • Deep research: Hægt er að nota Deep research til að fá meiri upplýsingar.
  • Agent mode: Hægt er að nota Agent mode til að fá hjálp með verkefni.
  • Web search: Hægt er að nota Web search til að fá nýjar upplýsingar af vefnum.
  • Canvas/Striginn: Hægt er að nota Canvas til að vinna með texta eða kóða.
  • Study and learn: Hægt er að nota Study and learn til að læra hluti.
pluss

Við förum yfir þessi atriði á næstu síðum.