Reglur um notkun gervigreindar hjá Orkuveitunni
Gervigreind (e. AI) er öflugt tæki sem getur stutt við nýsköpun, hraðari ákvarðanatöku og aukna skilvirkni í daglegu starfi. Notkun hennar skal ávallt vera í samræmi við gildi Orkuveitunnar - frumkvæði, framsýni, hagsýni og heiðarleika - og fylgja íslenskum lögum, innri stefnum fyrirtækisins og reglum um öryggi og persónuvernd.
1. Meðferð gagna
- Ekki má setja inn viðkvæmar eða persónugreinanlegar upplýsingar í fyrirmæli til gervigreindar nema fyrir liggi skýr heimild frá stjórnendum Orkuveitunnar.
- Öll vinnsla skal fara fram í öruggu umhverfi og í samræmi við persónuverndarstefnu fyrirtækisins og GDPR.
2. Réttmæti og ábyrg notkun
- Gögn og niðurstöður frá gervigreind skulu yfirfarnar með gagnrýnum hætti, þar sem AI getur verið óáreiðanlegt eða hlutdrægt.
- Gervigreind er ekki heimild, heldur stuðningstæki. Notandi ber ábyrgð á því að sannreyna upplýsingar áður en þær eru nýttar opinberlega eða teknar sem grundvöllur ákvarðana.
3. Gagnsæi og heiðarleiki
- Vertu skýr/ur um hvenær og hvernig þú notar gervigreind í starfi.
- Tilgreina skal hvort efni hafi verið unnið eða aðstoðað af AI þegar það á við.
4. Lærdómur og þróun
- Kynntu þér reglulega nýja möguleika og takmarkanir AI-tækja.
- Deildu dæmum, lærdómi og áskorunum með samstarfsfólki - með því eflum við sameiginlega þekkingu og þróun innan fyrirtækisins.
5. Í takt við stefnu Orkuveitunnar
- Notkun gervigreindar skal vera í samræmi við upplýsingatæknistefnu, stefnu um upplýsingavernd og eigendastefnu Orkuveitunnar.
- Öll notkun skal styðja við markmið fyrirtækisins um sjálfbærni, öryggi, nýsköpun og ábyrgð gagnvart samfélaginu.
🛑 Dæmi um gögn sem ekki má setja í opna gervigreind
Það er mikilvægt að átta sig á hvað telst til viðkvæmra gagna. Hér eru dæmi um gögn sem aldrei ætti að setja í gervigreindartól nema þau séu sérstaklega vottuð fyrir slíkt (t.d. innri Enterprise lausnir):
- Persónuupplýsingar: Nöfn, kennitölur, heimilisföng, símanúmer eða viðkvæmar upplýsingar um starfsfólk eða viðskiptavini.
- Lykilorð og öryggislyklar: Aðgangsorð, API lyklar, dulkóðunarlyklar eða önnur öryggisgögn.
- Viðkvæm fjárhagsgögn: Óbirt uppgjör, bankaupplýsingar, samningar í vinnslu eða viðkvæmar tölur um rekstur.
- Trúnaðarmál: Upplýsingar um óbirt verkefni, stefnumótun sem ekki er opinber, eða önnur mál sem falla undir trúnað.
Þumalputtaregla: Ef þú myndir ekki vilja að upplýsingarnar birtust á forsíðu blaðanna, ekki setja þær í gervigreindina.
📝 Hvernig á að vísa í gervigreind?
Þegar gervigreind er notuð í vinnu, skýrslugerð eða verkefnum er góður siður (og oft krafa) að geta þess.
Dæmi um tilvísun:
"Þessi texti var unninn með aðstoð ChatGPT við umorðun og yfirlestur."
Dæmi í skýrslu:
"Greining á gögnum var studd af Microsoft Copilot, en niðurstöður voru yfirfarnar og staðfestar af höfundi."
Ef gervigreind bjó til mynd:
"Myndin var búin til með DALL·E 3."