Íslenska
Spunagreind
ChatGPT
Sérsniðið ChatGPT

Þitt eigið GPT (CustomGPT)

Hægt er að búa til sitt eigið spjallmenni inni ChatGPT. Þá geturðu gefið spjallinu leiðbeiningar hvernig það á að haga sér og svara ásamt því að gefa því aðgang að gögnum sem það ætti að nýta í að svara spurningum.

Einnig er til markaðstorg fyrir CustomGPT, þar sem hægt er að nýta sér spjallmenni sem fyrirtæki og almenningur hefur útbúið. Oft er þar hægt að finna sniðug spjallmenni og ég hvet ykkur til að skoða. Einng birtast þar þau spjallmenni sem starfsmenn Orkuveitunnar hafa búið til og deila með öðrum starfsmönnum.

CustomGPT

💡
note
Þetta tól er vanmetið. Endilega prófið!

Hvar eru CustomGPT?

Þú opnar ChatGPT og smellir á CustomGPT uppi í vinstra horninu. Þá sérðu yfirlit yfir spjallmenni.

CustomGPT

Búa til CustomGPT

Við skulum búa til spjallmenni sem leiðbeinir starfsmönnum almennt um starfssemi Orkuveitunnar.

Það eru takmörk á fjölda skráa sem hægt er að setja inn sem þekkingargrunn fyrir CustomGPT. 20 skjöl, og verða vera undir 512MB hvert.

Skref 1: Smellum á "Create CustomGPT"

Ýtið á explore GPTs og þá er hnappur upp í hægra horni sem segir "+ Create"

Skref 2: Gefur spjallmenninu nafn og mynd

Það er ekki nauðsynlegt að setja mynd en ég mæli með því. Hægt er að útbúa mynd í spjalli eða hlaða upp mynd af tölvunni sem maður hefur tekið eða fengið lánaða af internetinu.

CustomGPT

Skref 3: Setjum inn leiðbeiningar

Inn í textaboxið "Instructions" setur maður síðan leiðbeiningar fyrir spjallmennið. Hér er gott að hafa skýran texta og sniðugt er að nýta gervigreinda til að hjálpa sér að ítra þennan texta til að hann sé sem bestur. (Einnig eru til CustomGPT sem hjálpa manni við þetta 😜)

Skref 4: Setjum inn tillögur að spurningum

Skref 5: Setjum inn þekkingu

Hér er hægt að hlaða upp pdf skjölum og fleira sem spjallmennið mun nýta í að svara spurningum þess sem notar spjallmennið.

Algengar spurningar

Sjá öll CustomGPT sem ég bý til?

Nei, þú getur stillt spjallmennið þannig að einungis þú sjáir, eða þeir sem hafa hlekk að spjallmenninu. Einnig er hægt að deila spjallmenninu með öllum innan Orkuveitunnar en við höfum ekki leyft að deila utan þess nema í sérstökum tilvikum.

Get ég breytt spjallmenni sem annar aðili bjó til?

Nei, því miður.

Dæmi um CustomGPT innan OR

Það er virkilega gaman að sjá CustomGPT sem starfsmenn hafa búið til og hér er mikið sóknartækifæri. Ég tek hér saman nokkur sem mögulega er hægt að nýta sem innblástur.

10 Gullnu Reglur Veitna

Höfundur: Guðmundur Ingi 👑

Hér er búið að skilgreina spjallmennið þannig að það þekki Gullnu reglur Veitna og getur því svarað spurningum út frá því. Hægt er að hlaða upp mynd og spyrja hvort vinnustaðurinn uppfylli kröfur Gullnu reglnanna.

https://chatgpt.com/g/g-KNcuWaiSo-gullnu-reglurnar (opens in a new tab)

MBTI Quiz Bot v1.0

Höfundur: Corey Harpe 👑

The MBTI Quiz Bot guides you through a fun, interactive 20-question personality quiz to determine your MBTI type. Receive a detailed breakdown of your personality type—including work tendencies, interpersonal strengths, and fun insights! v1.0

https://chatgpt.com/g/g-67a1395ec1348191a59299f732ee03da-mbti-quiz-bot-v1-0 (opens in a new tab)

Mannauðsbottinn

Höfundur: Sara Árnadóttir

Svarar spurningum um mannauðsmál hjá Orkuveitunni. Byggir á bókasafni sem mannauður hélt úti á Workplace (RIP).

https://chatgpt.com/g/g-68b96de67c488191abefdc02d7435c3f-mannaudsbottinn (opens in a new tab)