Íslenska
Spunagreind
Fyrirmælasmíði

Fyrirmælasmíði (Prompting)

Til að fá sem mest út úr spunagreindinni er mikilvægt að orða spurningar og athugasemdir vel. Það er aldrei minnst of oft á þetta.

🙋
Fyrirmæli/Prompting

Það sem þú setur inn í gervigreind (texti/mynd/myndband/skjáskot/hljóðupptaka/skjöl/etc.)

Listin að útskýra

Við erum oft óskýr og það er mjög mikilvægt að vera skýr til að fá það sem maður vill. Þetta á auðvitað við í mannlegum samskiptum en sérstaklega í gervigreind. Gervigreindin hefur oft ekki sama skilning og fólk sem býr við sama umhverfi og við. Við sem fólk nýtum okkur margt í umhverfi og samhengi til að svara og taka ákvarðanir, en það skortir gervigreindina oft. Það er kannski bara best að horfa á þetta myndband til að vekja okkur til umhugsunar.

Oft þegar gervigreindin er ekki að gefa okkur góð svör getur ástæðan verið að hún skilji ekki okkur alveg. Því er mikilvægt að vanda sig og setja smá metnað í spurningarnar.

Að spyrja góðra spurninga er æfing eins og allt annað. Því er um að gera að prófa og finna hvað virkar best fyrir okkur. Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um hvernig á að spyrja gervigreindina.

🔔
Mjög mikilvægt þegar við spyrjum gervigreindina
  • Vera skýr
  • Leggðu góðan grunn og bættu við samhengi
  • Þú færð það sem þú biður um
    • Rusl inn -> Rusl út ♻
ai 2025

Nokkur dæmi

1. Skilgreina tilgang/hlutverk

  • Settu fram að þú viljir að kerfi „leiki" einhvern.
  • Dæmi: „Þú ert sérfræðingur í orkumálum."

2. Útskýra aðstæður og bakgrunn

  • Lýstu samhenginu áður en þú spyrð eða óskar eftir svari.
  • Þetta hjálpar til við að fá markvissari og nákvæmari svör.

3. Takmarka svar eða gefa ramma

  • Fjölda orða
  • Stíl (formlegt / óformlegt / fræðilegt / einfalt)
  • Markhóp (t.d. stjórnendur, almenningur)

4. Taktu fram uppbyggingu eða skipulag

  • Biðja um ákveðið form:
    • Titil, Undirtitla, Punktalista, Töflur, ...
    • Dæmi: „Skilaðu í þremur hlutum: Inngangur, greining og niðurstaða."

5. Gefðu dæmi og biðja um sams konar svör

  • Gefðu fyrirmynd til fyrir tón og uppbyggingu.
  • Dæmi: „Hér er textadæmi — skrifaðu nýjan texta í sama stíl."

6. Biðja um endurgjöf eða nánari útskýringar

  • Gagnrýna yfirferð
  • Tillögur að endurbótum
  • Skýringar á tilteknum atriðum

7. Biðja um að þróa hugmyndir

  • Uppástungur
  • Mismunandi nálganir
  • Valkosti eða sviðsmyndir

8. Biðja um að vera spurður spurninga

  • Mjög öflugt tól til að afla meiri upplýsinga.
  • Dæmi: „Spurðu mig 10 spurningar um [] og skrifaðu svo samantekt út frá mínum svörum"

Fyrirmæli - https://blog.bytebytego.com/p/a-crash-course-on-using-ai-to-save

Google leiðbeiningar um Prompting

Hér má sjá hvernig Google leiðbeinir fólki að byggja upp fyrirmæli. Google prompt Prompting leiðbeiningar frá Google (opens in a new tab)

Markdown fyrirmæli

Þegar við spyrjum spunagreindina er ekki hægt að gera texta feitletraðan, útbúa titla o.fl. þá er ráð að nota markdown. Markdown er notað til að stilla upp texta (format text). Mállíkön eiga auðveldara með að lesa.

Hér sést hvernig markdown umbreytist í stílaðan texta. Markdown

Skjáskot

Það getur verið mjög öflugt að setja inn skjáskot inn í gervigreindina. T.d. til að auka samhengi eða til að hjálpa okkur að leysa vandamál í tölvum án þess að þurfa að lýsa öllu.

Sem dæmi þá fékk ég þessa villu upp í powerpoint: Markdown

Ég tók einfaldlega skjáskot af villunni og setti myndina inn sem viðhengi. Markdown

Þetta getur verið mjög öflugt til að hjálpa okkur að leysa vandamál í tölvum án þess að þurfa að lýsa öllu. En alltaf það sama, passa að það séu ekki viðkvæmar upplýsingar á myndnum.

Myndir

Hægt er að hlaða inn myndum í gervigreinda. Bæði til að breyta myndinni eða til upplýsinga.

Hver kannast ekki við að vera í vandræðum með þvottinn. Ég er amk alltaf pínu óörugg að setja úlpur í þvottavélina og hér er dæmi um hvernig ég nýti myndir og gervigreind til að aðstoða mig.

Skref 1: Hlaða inn mynd og spyrja

Ég hleð inn myndinni og set inn texta um hvernig hjálp mig vantar.

Þvottamynd

Skref 2: Lesa

Ég fæ mjög greinagott svar til baka sem ég get nýtt mér til að skemma ekki úlpuna mína. Þetta er virkilega öflugt tól, því það hefði verið töluvert flóknara fyrir mig að útskýra þetta allt.

ÞvottamyndÞvottamynd

Tvö skjáskot af svarinu sem ég fékk til baka.

Skref 3: Ýtra

Eins og sjá má þá heldur gervigreindin áfram að reyna að aðstoða og stingur upp á næstu skrefum. Algjör snilld og hægt að heimfæra þetta á önnur verkefni í vinnunni.

Dæmi um nokkur öflug fyrirmæli

Hjálp við að spyrja

Ef þú ert ekki viss um að fyrirmælin þín séu nógu góð, er tilvalið að fá hjálp frá gervigreindinni. T.d. hægt að skrifa niður fyrirspurnina, og bæta fyrir framan:

Act as a prompt engineer review the following prompt for me. Optimize it to make it better and ask any questions you have before proceeding"

Þú ert ...

Hægt er að setja gervigreindina inn í hlutverk til að auðvelda manni vinnunna. T.d. segja henni að hún eigi að svara eins og alvarlegur bókari eða skemmtilegur grínisti.

Síðan er hægt að taka þetta lengra og biðja gervigreindina um að spyrja mann spurninga.

You are an elite ______. And I am your student whom you must pass on your knowledge and expertise. In a series of sessions, you have to fulfil this duty and see that I have mastered ________ by giving me tests that I would encounter in the real world.

Aðstoð við að spyrja

Hér eru fyrirmæli sem hjálpa okkur að útbúa betri fyrir mæli með ítrun.

I want you to become my Prompt engineer. Your goal is to help me craft the best possible prompt for my needs. 
The prompt will be used by you, ChatGPT. You will follow the following process:
 
1. Your first response will be to ask me what the prompt should be about. I will provide my answer, but we will 
need to improve it through continual iterations by going through the next steps.
 
2. Based on my input, you will generate 2 sections, a) Revised prompt (provide your rewritten prompt, it should 
be clear, concise, and easily understood by you), b) Questions (ask any relevant questions pertaining to what 
additional information is needed from me to improve the prompt).
 
3. We will continue this iterative process with me providing additional information to you and you updating 
the prompt in the Revised prompt section until I say we are done.
 

Hlekkir á lesefni um Prompting