Íslenska
Spunagreind
ChatGPT
Rannsóknarvinna

Rannsóknarvinna (Deep Research)

Rannsóknarvinna (Deep Research) er sérstakur hamur í ChatGPT sem hentar þegar þú þarft ítarlega, greinargóða og heimildamiðaða greiningu á ákveðnu málefni, hugmynd, vandamáli eða stefnumótandi spurningu.
Hér er sérstaklega mikilvægt að forma spurningar vel og vera skýr um markmið rannsóknarinnar.

Þegar þú virkjar djúprannsókn leitar gervigreindin í þónokkurn tíma og getur það tekið allt að 30 mínútur fyrir spjallmennið að útbúa niðurstöðu. Útkoman er yfirleitt greinargerð með skýrum kaflaskiptum, samantektum og heimildum sem þú getur rýnt nánar í.


Kveikja á rannsóknarvinnu (Deep Research)

Þú virkjar Rannsóknarhaminn með því að:

  1. Smella á plúsinn (+) við skilaboðareitinn
  2. Haka við Deep Research

Þegar hamurinn er virkur og þú sendir fyrirspurnina mun ChatGPT kafa djúpt í viðfangsefnið og skila ítarlegri greinargerð.

Deep Research


Hvenær ætti ég að nota rannsóknarvinnu (Deep Research)?

Rannsóknarvinna hentar sérstaklega vel þegar:

  • 🔍 Viðfangsefnið er flókið eða margþætt
    t.d. stefnumótun, samanburður á lausnum eða greining á þróun

  • 📚 Þú þarft heimildir og staðfestar upplýsingar
    t.d. fyrir skýrslur, kynningar, minnisblöð eða ákvarðanatöku

  • ⚖️ Þú vilt vega kosti og galla
    t.d. tæknival, innleiðingarleiðir eða mismunandi nálganir

  • 🏢 Unnið er í faglegu eða skipulagslegu samhengi
    t.d. fyrir verkefnahóp, stjórn eða innri stefnumótun

  • 🆕 Efnið er nýlegt eða í stöðugri þróun
    t.d. gervigreind, regluverk, tæknitrend eða markaðsþróun

Dæmi um góð notkunartilvik

  • Greining á því hvernig önnur fyrirtæki nota AI og hvaða ávinning þau sjá
  • Samanburður á mismunandi tæknilausnum með tilliti til öryggis og kostnaðar
  • Undirbúningur fyrir ákvarðanir sem krefjast traustra raka og heimilda

Hvenær þarf ég ekki rannsóknarvinnu?

Venjulegt ChatGPT dugar yfirleitt þegar þú ert að:

  • ⚡ Leita að fljótu svari eða einfaldri útskýringu
  • ✍️ Skrifa texta, tölvupóst, kóða eða tillögur
  • 💡 Vera í hugmyndavinnu eða brainstorming
  • 🛠️ Leysa afmarkað tæknilegt vandamál

Þumalputtaregla

Ef þú myndir annars eyða 30-60 mínútum í að googla og lesa heimildir → notaðu Deep Research.
Ef þetta er spurning sem þú myndir spyrja samstarfsfélaga → venjulegt ChatGPT er nóg.