Microsoft Copilot
Microsoft Copilot spjallið er gervigreindaraðstoðarmaður sem þú getur spjallað við beint, svipað og ChatGPT. Þetta spjall er innifalið í okkar Microsoft áskrift svo um að gera að nýta sér þetta tól. Spjallið nýtir sér sama módel og ChatGPT og tekst á við verkefnin líkt og ChatGPT þrátt fyrir að viðmótið sé öðruvísi.
Tilvalin leið til að prófa sig áfram!

Hvar er Copilot?
Hægt er að nálgast Copilot í vafra https://copilot.microsoft.com/ (opens in a new tab) og í Teams. Við getum séð Copilot í ýmsum Microsoft vörum en við höfum ekki opnað fyrir aðgang á tengingar við okkar kerfi.
Við erum ekki búin að fjárfesta í tengingu við Excel, Outlook o.fl. við Copilot. Ef þú hefur áhuga á að vera með í testhóp um notkun á því máttu endilega hafa samband við saraa@or.is.
Algengar spurningar
Getur einhver séð spurningarnar mínar?▶
Nei, ekki nema að þú deilir svörum með öðrum. Forðastu þó að setja inn viðkvæm gögn.
Er öruggt að spyrja með trúnaðarupplýsingum?▶
Nei. Settu aldrei inn lykilorð eða önnur viðkvæm gögn. En ef þú getur sent gögnin í tölvupósti er í lagi að setja það inn í spjallið.
Tengist Copilot innri kerfum okkar?▶
Nei. Við höfum ekki opnað fyrir tengingar við okkar kerfi. Copilot sér aðeins gögn sem þú setur inn. Við erum þó að prófa tengingar við okkar kerfi og ef þú vilt vera með í þeim hópi máttu endilega hafa samband.
Hvar finn ég Copilot?▶
Í vafra á copilot.microsoft.com og í Teams.
Virkar Copilot á íslensku?▶
Já, en enska skilar oft nákvæmari svörum. Prófaðu bæði.
Má ég deila svörum frá Copilot?▶
Já, svo lengi sem þau eru ekki trúnaðarmál. Deildu texta eða skjámynd. Mikilvægt er að þú lesir og rýnir gögnin, þar sem þú berð ábyrgð á því sem þú deilir.
Skoðum þetta
Þetta tól er frábær leið til að einfalda vinnuna og skulum við taka nokkur dæmi.