Rýna gögn
Hægt er að hlaða upp alls kyns skrám, pdf, word, excel, csv o.fl. og spyrja spurninga út í skjölin. Þetta getur sparað manni sporin.
Viðskiptaupplýsingar
Ég hleð upp .csv skrá með gögnum um viðskiptavini sem ég fann á netinu og bið gervigreindina um að rýna skjalið fyrir mig. Út úr því kemur spjallið með upplýsingar úr skjalinu og teiknar graf af upplýsingum. Hægt er að setja inn excel skjöl og biðja um gröf, greiningar o.fl. Endilega prófa.
Smá sýnishorn til að sýna möguleikana. Það sem má kannski draga út úr þessu er að það er mikilvægt að prófa sig áfram.