Íslenska
Spunagreind
ChatGPT
Raddspjall

Raddspjall og talgreining (Voice & Dictate)

ChatGPT býður upp á öflug raddtól sem gera þér kleift að nota röddina í stað lyklaborðs. Hér er annars vegar hægt að tala og láta spjallið umbreyta röddu í texta (Dictate) og hins vegar að tala beint við ChatGPT í rauntíma líkt og í símtali (Voice Mode).

Þessi tól eru sérstaklega gagnleg þegar þú vilt vinna hraðar, hugsa upphátt eða nýta samtal frekar en skrif.


Skrifa texta með rödd (Dictate)

Þú getur ýtt á hljóðnematáknið hægra megin í skilaboðareitnum.
Þá tekur ChatGPT upp röddina þína og umbreyti henni sjálfkrafa í texta sem þú getur síðan sent, breytt eða lengt.

Dictate

Hvenær er Dictate sérstaklega gagnlegt?

  • ✍️ Þegar þú vilt skrifa lengri texta hratt
  • 🧠 Þegar hugsunin flæðir betur með tali en skrift
  • ♿ Fyrir aðgengi eða þegar lyklaborð er óþægilegt
  • 🚶‍♀️ Þegar þú ert á ferðinni og vilt „tala“ hugmyndir inn

Dictate hentar vel í tölvupósta, minnispunkta, hugmyndavinnu og fyrstu drög að texta.


Raddspjall í rauntíma (Voice Mode)

Voice Mode gerir þér kleift að „hringja í“ ChatGPT og eiga samtal í rauntíma - líkt og í símtali.
Þetta er oft vanmetið tól, en getur verið mjög öflugt til að hugsa upphátt, rökræða og kafa dýpra í efni.

Voice

Hvenær er Voice Mode gott val?

  • 💡 Hugmyndavinna og brainstorming
  • 🗣️ Rökræður eða að fá mótrök
  • 📚 Að læra nýtt viðfangsefni með spurningum og svörum
  • 🧩 Þegar þú ert ekki með skýra spurningu, heldur vilt „tala þig að henni“

Tungumál

Þú getur talað íslensku í Voice Mode.
Stundum, ef samtalið byrjar á t.d. „hæ“, gæti spjallið svarað á ensku. Þá er einfaldlega nóg að segja:

„Geturðu talað íslensku?“
og samtalið heldur áfram á íslensku.


Munurinn á Dictate og Voice Mode

DictateVoice Mode
Umbreytir rödd í textaSamtal í rauntíma
Hentar vel til að skrifaHentar vel til að hugsa og læra
Texti sendur áfram í spjallSpjallið svarar með rödd
Þú stjórnar áframhaldinuSamtalsform líkt og símtal

Þumalputtaregla

  • Viltu skrifa hraðar → notaðu Dictate
  • Viltu hugsa upphátt eða ræða mál → notaðu Voice Mode

Bæði tól eru frábær viðbót við hefðbundið spjall og geta sparað tíma og aukið flæði í vinnu og hugmyndavinnu.