Google AI
Google býður upp á fjölbreytt og öflug gervigreindartól sem vel er þess virði að prófa. Þó við séum ekki með formlegan aðgang að þessum tólum í vinnunni, er alveg í lagi að kanna þau áfram í eigin persónulegum tilgangi. Til þess þarftu Gmail-netfang, sem margir eru nú þegar með.
Google NotebookLM
Google NotebookLM er eitt af áhugaverðari AI-tólum Google. Þar geturðu búið til svokallaða „bók“ sem inniheldur ýmis gögn og heimildir, og síðan spjallað við bókina. Tólið getur meðal annars hjálpað þér að útbúa tímalínur, samantektir, skýrslur, minnisspjöld (flashcards), podcast og er sérstaklega hentugt til að taka saman efni úr YouTube-myndböndum.
Til að nota NotebookLM ferðu á eftirfarandi vefslóð og skráir þig inn með Gmail-netfanginu þínu: https://notebooklm.google.com (opens in a new tab)
###Dæmi: Umhverfisáhrif gervigreindar
Þegar þú opnar NotebookLM byrjarðu á að búa til nýja „bók“. Þá birtist þetta viðmót, þar sem þú getur hlaðið upp textaskrám, myndum, hlekkjum og öðru efni sem þú vilt nota sem heimildir:

Hér er ég búin að safna saman ýmsum gögnum og greinum sem tengjast gervigreind og umhverfismálum. Í kjölfarið fæ ég þetta viðmót, þar sem ég get spurt spurninga út í gögnin. Til hægri eru síðan aðgerðir sem hægt er að nota til að vinna frekar með efnið:

Hér er dæmi um minnisspjöld (flashcards) sem hægt er að nota til að læra og festa efnið betur í minni:

Þegar ég smelli á spjaldið birtist svarið hinum megin:

Það sem mér finnst líka einstaklega sniðugt er að geta útbúið podcast um efnið. Þá er hægt að hlusta á samantektina á meðan maður keyrir, gengur eða sinnir heimilisverkum ☺️ Þú velur þá Audio overview í stikunni hægra megin. Hér má heyra hljóðdæmi úr þessari bók - og það er meira að segja hægt að velja íslensku!
