Striginn (Canvas)
Það getur verið mjög þreytt að fara fram og til baka. Afrita texta eða kóða frá spjallinu, til að afrita hann aftur í spjallið með lagfæringum og biðja um uppfærslur. Þessi dans getur verið langur og er í raun óþarfur ef þú notar Strigann (Canvas).
Þú opnar Canvas með því að smella á plúsinn og ýta á Canvas. Eða skrifa "svaraðu mér með Canvas" eða álíka texti.

Dæmi: Texta vinnsla
Tökum dæmi um hvernig á að nota Canvas til að vinna með og betrumbæta texta.
Ég bið spjallið að skrifa fyrir mig texta um Bæjarháls 1 og fæ til baka svar. Ég er ekki sátt með svarið og þá myndu margir afrita textann og uppfæra hann í Word eða í spjallglugganum fyrir neðan, síðan biðja gervigreindina um að uppfæra nýja textan.

Í staðinn fyrir að afrita fram og til baka inn í spjallið bið ég spjallið um að opna Canvas.

Þá opnast textinn í öðru viðmóti og hægt er að ýta á "Edit". Þá er hægt að uppfæra textann líkt og í Google Docs og Word Online. Við sleppum þá við að afrita textan fram og til baka.
Spjallið opnast þá til vinstri og hægt er að biðja um upplýsingar, uppfærslu á texta o.fl. líkt og í venjulegu spjalli.

Til hægri má sjá stiku sem bíður upp á nokkra möguleika sem eiga við textagerð.
- Bæta við táknum / emoji í textann
- Lengd texta, hægt að stytta og lengja.
- Menntunarstig texta (fyrir mismunandi stig; leikskóla, grunnskóla, háskóla). Hér mætti nefna dæmi um hvernig orðaval og setningagerð breytist eftir menntunarstigi, t.d. einfalt og myndrænt mál fyrir leikskóla, skýr og stuttar setningar fyrir grunnskóla, en fræðilegra og nákvæmara mál fyrir háskóla.
- Stinga upp á úrbótum: Þá opnast athugasemdir til hliðar með úrbótum og rökstuðningi. Sem þú getur samþykkt eða hafnað.
- Fínpússa texta; t.d. passa að það sé allt í samræmi og skoðar stafsetningu.
Hér er ég búin að stytta textann eins og ég get og fæ þetta út.

Næst vel ég að setja þetta á leikskólastig...

Mjög sætur og fallegur texti um Bæjarháls 🥰
Dæmi: Kóða vinnsla
Kemur von bráðar!